Costa Blanca Norður, Marina Baja, Altea
Þessi eign er ekki í boði
REF 2416963
Staðsett í friðsælu íbúðarhverfi Altea, við fjallsræturnar og með stórbrotnu útsýni yfir sjóinn. Aðalbær Altea, með öllum daglegum nauðsynjum, er í aðeins 15 mínútna fjarlægð með bíl. Borgin Benidorm er einnig í stuttri akstursfjarlægð. Þetta er kjörinn staður til að slaka á í náttúrulegu umhverfi en vera nálægt þjónustu í borginni.
Lúxus einbýlishús, byggt á 1.000 m2 lóð, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Aðalhæðin samanstendur af rúmgóðri stofu, borðstofu og eldhúsi. Stofan er búin stórum glerhurðum sem opnast út á verönd og sundlaugarsvæði. Á þessari hæð er einnig salerni og hjónaherbergi með en-suite baðherbergi. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi, hvort þeirra um sig hefur verönd með útsýni yfir sundlaugina og garðinn, og sameiginlegt baðherbergi. Bílskúr og kjallari afhendist óklárað en þar má gera breytingar eftir þörfum.
Húsið býr að gæðafrágangi og því fylgir loftkæling/hitun, eldhústæki, frágenginn garður, smart lýsing, infinity sundlaug, sjálfvirk hlið og bílskúrshurð og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Altea
Altea er af mörgum talin fegursta borgin á Costa Blanca.
Gamli miðbærinn með sínum þröngu og bröttu götum, hvítu húsum og sinni víðfrægu bláu kirkjuhvelfingu, gefa staðnum töfrum gætt yfirbragð og sjarma. Bóhemískt andrúmsloftið í Altea hefur dregið að listamenn sem leita eftir fegurð og einstakri birtu við Miðjarðarhafið. Við sjávarröndina í neðri hluta bæjarins er strandgata, höfnin og siglingaklúbbur. Á þessu svæði er að finna úrval nýbygginga, sér í lagi íbúðir mjög nálægt ströndinni. Í 5 km. fjarlægð frá miðbænum er Altea Hills, lúxus íbúðasvæði þar sem finna má fimm stjörnu hótel og golfvöll. Hér er að finna einstakt úrval fasteigna, með áherslu á lúxusíbúðir og einbýli. Skoðið fasteignirnar á ströndinni við Altea.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum