Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
REF 2090005
Nýr kjarni einbýlishúsa í Finestrat, í aðeins 5 mínútna akstursfjarlægð frá fallegu Poniente ströndinni í Benidorm. Öll nauðsynleg dagleg þjónusta er í La Marina de Finestrat verslunarmiðstöðinni, sem er mjög nálægt kjarnanum. Svæðið er vel tengt við AP-7 hraðbrautina, milli Alicante og Valencia.
Húsin eru á tveimur hæðum og lóðirnar frá 413m2. Hvert hús hefur 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi, og tvær þakverandir. Björt og rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús eru á jarðhæð og þaðan er gengið út á 200m2 útisvæði þar sem koma má fyrir einkasundlaug. Á jarðhæð er einnig svefnherbergi og baðherbergi. Á efri hæð eru 2 tveggja manna en-suite svefnherbergi, hvort um sig með aðgangi að verönd. Stór þakveröndin og einkum þakveröndin í turninum eru einstakar til að njóta útsýnisins.
Húsunum fylgir loftkæling/hitun, gólfhiti á baðherbergum, myndavélardyrasími og einkabílastæði á lóð. Velja má um sundlaug og svæði til afslöppunar á þakverönd.
Costa Blanca Norður, Marina Baja, Finestrat
Finestrat er einn af bæjunum í Alicante-héraði sem sameinar kjarna svæðisins: sjó og fjöll.
Finestrat þýðir fjall, vegna þess að söguleg miðbær bæjarins liggur við rætur hins glæsilega Puig Campana, sem er tvímælalaust sá tindur sem hefur mestan karakter í öllu héraðinu. Finestrat er líka Miðjarðarhafið; fleyglaga bæjarsvæðið nær allt að ströndinni við Cala Morales, almennt þekkt sem Cala de Finestrat.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum