Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca
Þessi eign er ekki í boði
REF 3479836
Nýr íbúðakjarni á La Finca golfvellinum, suður af Alicante. Á svæðinu er 5 stjörnu heilsulindarhótel, glæsilegt klúbbhús með veitingastöðum, líkamsræktarstöð og verslun. Við innkeyrsluna í hverfið má einnig finna þjónustukjarna með veitingastöðum og verslunum. Nærliggjandi bæir Algorfa og Ciudad Quesada bæta við úrval þjónustunnar og strendur Torrevieja og Guardamar eru í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð.
Kjarninn býður upp á íbúðir með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, staðsettum í fallegu golfumhverfi. Eignirnar eru af tveimur mismunandi gerðum; jarðhæð með einkagarði og efri hæð með stórri þakverönd. Allar íbúðirnar hafa bjarta og rúmgóða stofu, með beinum aðgangi að veröndinni og í báðum gerðum er hjónaherbergi með en-suite baðherbergi.
Íbúðirnar á jarðhæðinni hafa stóra verönd sem er yfirbyggð að hluta til og mælist 40m2-50 m2, auk garðs. Íbúðir á efstu hæð eru með rúmgóðri þakverönd, yfir 70m2 að stærð og með fallegu útsýni yfir dalinn.
Nútímalegar íbúðir byggðar með vönduðum efnum og yfirvegaðri hönnun, afhentar með loftkælingu og fullbúnum baðherbergjum. Sameiginlegt svæði með stórkostlegri sundlaug og görðum er í kjarnanum.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca
La Finca er afmörkuð íbúabyggð sem teygir sig utan um samnefndan golfvöll, La Finca Golf. Hér er að finna fyrsta flokks þjónustu eins og fimm stjörnu hótel, stórt klúbbhús, golfskóla, íþróttavöll og verslanasvæði með veitingastöðum og annarri þjónustu.
Fasteignirnar við La Finca Golf eiga sameiginlegt rólegt umhverfið og fallegt útsýni yfir dalinn. Í aðeins um 2 km. fjarlægð frá miðbæ Algorfa og allri nauðsynlegri þjónustu, og í 15 mín. fjarlægð frá ströndum Guardamar. Fullkominn staður fyrir þá sem leita eftir fasteign í nálægð við ströndina, langt frá skarkala en þó stutt í allt. Hér má sjá fasteignaframboðið við La Finca Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum