Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 1867302
Nýr kjarni íbúða og raðhúsa, staðsettur í Ciudad Quesada í Rojales. Aðeins 10 mínútna akstur til stórbrotinna stranda Guardamar og Torrevieja og kjarninn er staðsettur nálægt fallega náttúrugarðinum Laguna de La Mata. Í næsta nágrenni má finna nauðsynleg þægindi, eins og stórmarkaði, banka, apótek, bari og veitingastaði. Kjörinn staðsetning fyrir þá sem vilja flytja sig um set eða fyrir þá sem leita að eign til dvalar í fríum.
Tvær gerðir eigna eru í kjarnanum; íbúðir með 2 svefnherbergjum og raðhús með 3 svefnherbergjum. Velja má um tvær tegundir íbúða, jarðhæð með garði eða efri hæð með þakverönd. Allar íbúðirnar eru með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, opinni stofu, borðkrók og eldhúsi, verönd og loftkælingu. Á jarðhæð er yfirbyggð verönd og garður en á efri hæð er þakverönd sem nálgast má frá verönd útfrá stofunni.
Raðhúsin eru á tveimur hæðum og njóta rúmgóðrar jarðhæðar með eldhúsi, borðstofu og stofu sem opnast út á verönd og garð. Á þeirri hæð má einnig finna hjónaherbergi og baðherbergi. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi, baðherbergi og 15m2 verönd.
Öllum eignum fylgir loftkæling, inni og úti lýsing, fullkláruð baðherbergi og sturtugler, rafdrifnir gluggahlerar og bílastæði á opnu bílastæði.
Sameiginlegt svæði býr að sundlaug og slökunarsvæði og grænar gönguleiðir eru milli blokkanna.Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum