Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 259721
Falleg einbýlishús í Ciudad Quesada, vinsælu hverfi við suður Costa Blanca sem býður uppá fjölbreytt úrval verslana, vatnagarð og golfvöll. Hverfið er staðsett í fimm mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Guardamar og Torrevieja. Í boði eru hús á einni hæð ásamt þakverönd, sem að utanverðu eru prýdd Miðjarðarhafsstíl, en innréttuð á nútímalegan og fallegan hátt. Allar eignirnar samanstanda af 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og opinni stofu/borðstofu sem tengist eldhúsinu. Húsin eru byggð á allt að 435.81 m2 lóðum og þeim fylgir garður, einkasundlaug og bílastæði. Á þakverönd er 31 m2 stórt sólskýli en því má jafnvel loka og útbúa þannig viðbótarpláss, annað hvort svefnherbergi með baðherbergi, aukastofu eða hverju sem kaupandinn kýs að velja.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum