Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Þessi eign er ekki í boði
REF 1863071
Glæsilegt einbýli við Las Colinas Golf. Svæðið er girt af og búið öryggisgæslu og umkringt fallegum gróðri hvert sem augað lítur en frá svæðinu má einnig sjá til sjávar. Lóð eignarinnar er 630 m2 og húsið er fallega hannað, rúmgott og bjart, 150 m2 að stærð, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum (2 þeirra innaf svefnherbergjum). Ganga má niður í kjallara hússins að innanverðu en kjallarinn mælist um 80 m2. Að auki er sérinngangur í kjallarann en hann er búinn góðri dagsbirtu. Einkasundlaug fylgir eigninni með upphitunarkerfi og stórum veröndum.. Fallegur garður er enn fremur hluti af eigninni en hann krefst lítils viðhalds. Önnur atriði sem vert er að taka fram: Gólfhiti er á baðherberjum hússins, rafmagnsgluggahlerar, rafknúnar rúllugardínur í eldhúsi og stofu, innbyggður vínskápur í eldhúsi, tvö svefnherbergi eru búin öryggishólfi og húsið selst fullbúið húsgögnum og hágæða heimilistækjum.