Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada, Mil Palmeras
Þessi eign er ekki í boði
REF 3062944
Nýr kjarni einbýlishúsa í Mil Palmeras, aðeins 950 m frá ströndinni. Staðsettur í nánd við helstu þjóðvegi sem tengja strendur Costa Blanca, suður frá Torrevieja, um Orihuela Costa til Torre de la Horadada. Öll nauðsynleg þjónusta eins og matvöruverslanir, banka, apótek og fleira, má finna í Pilar de la Horadada, í aðeins nokkra mínútna akstursfjarlægð.
Húsin eru á tveimur hæðum, byggð á 292 m2 lóðum, með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Stórir gluggar prýða eignirnar og veita birtu um híbýlin. Björt og rúmgóð opin stofa og eldhús og gengið er úr stofunni á stóra verönd og út í garðinn. Á jarðhæð er svefnherbergi með baðherbergi ásamt gestasalerni en á efri hæð má finna önnur 2 svefnherbergi sem einnig hafa eigin baðherbergi. Bæði herbergin uppi hafa aðgang að verönd sem snýr að garði og sundlaug. Þá er önnur verönd þaðan sem ganga má upp á þakverönd húsanna. Einkasundlaug, þvottahús útaf af eldhúsinu og geymsla fylgir húsunum og þau eru tilbúin fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun. Biðja má um að þakverönd verði undirbúin fyrir nuddpott.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada, Mil Palmeras
Las Mil Palmeras er íbúðabyggð við hafið við Orihuela Costa og heyrir undir bæinn Pilar de la Horada.
Það má segja að í Las Mil Palmeras séu einu bestu strendur sem fyrirfinnast á allri Costa Blanca, með um 3 km. langri strönd af fínum sandi og fjölbreyttri þjónustu. Þótt mikil uppbygging hafi átt sér stað á síðustu árum, býr staðurinn enn yfir róandi töfrum Miðjarðarhafsins, þar sem mögulegt er að kaupa nýjar eignir á sjálfri ströndinni. Skoðið fasteignaframboðið við Las Mil Palmeras
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum