Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Fulgencio-La Marina
Þessi eign er ekki í boði
REF 253302
Nýr kjarni einbýlishúsa á rólegu svæði í La Marina hverfinu sem hefur fram að færa alla nauðsynlega þjónustu; matvöruverslanir, banka, apótek og aðrar verslanir. Aðeins 5 km frá ströndinni í El Pinet í La Marina bænum. Kjarninn býður upp á 3 gerðir af einbýlishúsum; með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum á tveimur hæðum með þakverönd og með 3 svefnherbergjum með möguleika á að bæta við fjórða herberginu ásamt 3 baðherbergjum og byggð á tveimur hæðum án þakverandar. Öll heimilin samanstanda að auki af rúmgóðri og bjartri stofu, nútíma eldhúsi og verönd. Byggð á 500 m2 lóðum með einkasundlaug, stórum garði og bílastæði.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), San Fulgencio-La Marina
San Fulgencio, á milli Guardamar og Santa Pola, í sunnanverðu Alicante-héraði er bær þar sem finna má íbúðabyggð sem þekkist undir nafninu Urbanización La Marina. Í aðeins 6 km. fjarlægð frá ströndu er hér að finna frábært fasteignaframboð með fullkominni þjónustu og innviðum.
Einbýli og raðhús eru vinsælust í Urbanización La Marina sem býður upp á ein bestu gæðin miðað við verð á allri Costa Blanca. Skoðið fasteignaframboðið í San Fulgencio-La Marina:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum