Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Þessi eign er ekki í boði
REF 116008
Einbýlishús með einkasundlaug og útsýni yfir golfvöllinn í Ciudad Quesada. 5 mínútna gangur er að klúbbhúsi vallarins La Marquesa og verslunarsvæði þar í kring. Aðeins 10 km eru að ströndinni í Guardamar.
Húsin eru fallega hönnuð, með 3 svefnherbergjum, 4 baðherbergjum, stórri stofu og rúmgóðu eldhúsi. stórar svalir samtals um 80 m2 eru í húsinu og stór garður með 4x8 m sundlaug. Þökk sér staðsetningu og hönnun búa húsin að frábæru útsýni yfir golfvöllinn og dalinn í kring.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Ciudad Quesada - Rojales
Ciudad Quesada er vinsæl íbúðabyggð við suður Costa Blanca í um 8 km. fjarlægð frá ströndunum í Guardamar og ýmisskonar þjónustu. Hverfið býr yfir eigin golfvelli, La Marquesa Golf, vatnsleikjagarði, hótelum og miklum fjölda verslana og tómstunda.
Einbýli og raðhús eru lang stærsti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er þar að finna úrval íbúða. Framboðið er afar heillandi vegna gæða á góðu verði, nokkuð sem þúsundir íbúa sem valið hafa að búa í Quesada þekkja vel. Skoðið fastegnaframboðið í Quesada
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum