Costa Blanca Suður, Vega Baja (Interior), Daya Nueva
Þessi eign er ekki í boði
REF 3079852
Staðsett í litlum bæ, Daya Nueva, við suður Costa Blanca, í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð frá nærliggjandi bæjum, Almoradí og Rojales. Bærinn býður upp á fjölbreytt úrval daglegra nauðsynja, auk friðsæls umhverfis sem einkennist af appelsínu- og sítrónuökrum. Kjörinn staður til dvalar, allt árið um kring. Marquesa golfvöllinn, vatnagarð og ýmsar tómstundir má sækja í Ciudad Quesada innan 10 mínútna og stórkostlegar strendur Guardamar eru í 20 mínútna akstursfjarlægð.
Húsin eru á tveimur hæðum, byggð á lóðum á bilinu 217m2-301m2, með 3 svefnherbergjum og 3 en-suite baðherbergjum. Jarðhæðin samanstendur af opinni stofu, borðstofu og eldhúsi í amerískum stíl en alrýmið opnast út á rúmgóða verönd með einkasundlaug. Einnig má finna gestasalerni, þvottahús og en-suite svefnherbergi á jarðhæð. Önnur 2 svefnherbergi eru á efri hæð, hvert um sig með aðgangi að verönd.
Húsið er afhent tilbúið til uppsetningar á loftkælingu, því fylgja fataskápar, einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Interior), Daya Nueva
Daya Vieja og Daya Nueva eru tveir litlir nágrannabæir staðsettir í hjarta Vega Baja svæðisins. Svæðið einkennist af landbúnaði, sérstaklega ræktun á þistilhjörtum og kartöflum.
Undanfarin ár hafa bæirnir tekið miklum breytingum þökk sé byggingu á fasteignum sem ætlaðar eru ferðamönnum en framboðið einkennist af einbýlishúsum á mjög góðu verði þar sem rólegt umhverfi, umkringt náttúru einkennir næsta nágrenni. Aðeins 10 km eru að ströndum Guardamar og bæirnir eru einnig mjög nálægt helstu ferðamannastöðum í nágrenninu, svo sem Santa Pola, Torrevieja eða Orihuela Costa.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum