Costa Blanca Suður, Vinalopó Medio
REF 4193109
Nýr kjarni einbýlishúsa í Pinoso, íbúðahverfi við Elche. Svæðið er nálægt Alenda golfvellinum og skammt frá daglegri þjónustu í Aspe og borginni Elche. Náttúrulegur og friðsæll staður, og í aðeins 40 mínútna akstursfjarlægð frá frábærum ströndum Arenales del Sol og Santa Pola.
Velja má um þrjár gerðir húsa, öll með 3 svefnherbergjum og 2-3 baðherbergjum, byggð á lóðum 10000m2. Valið stendur um einbýlishús á einni hæð með eða án þakverandar, eða tveggja hæða einbýlishús með stórri verönd. Í öllum húsunum er rúmgóð stofa, borðstofa og nútímalegt eldhús, með stórum gluggum út á verönd og útsýni yfir garðinn.
Húsin eru byggð með hágæða efnum og boðið er uppá ýmsa valkosti við frágang. Allar eignir eru með fullbúnu eldhúsi, lýsingu, fataskápum, þvottahúsi og bílastæði á lóð. Það fer svo eftir gerð hússins hvort loftkæling/hitun er innifalin en einkasundlaug er einnig innifalin í kaupunum.
Costa Blanca Suður, Vinalopó Medio
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum