Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 215114
Nýr kjarni einbýlishúsa með nútímalegri hönnun í fremstu línu og með útsýni yfir golfvöllinn á Roda Golf. Flott staðsetning sem sameinar golf og strönd, ströndin í Los Alcazares er í aðeins 3 km fjarlægð. Húsin eru byggð á tveimur hæðum og samanstanda af 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum, tvö af þeim ensuite, bjartri stofu/borðstofu og opnu nútíma eldhúsi ásamt stórum veröndum á báðum hæðum. Öll húsin eru byggð á 300 m2 lóðum og hafa garð og bílastæði. Einkasundlaug er valmöguleiki.
Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum