Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 3616073
Einstakar íbúðir innan við 100 metra frá ströndinni í Santiago de la Ribera, við Costa Cálida. Staðsett nálægt göngusvæðinu með verslunum, börum og veitingastöðum. Aðalbærinn San Javier býður upp á fullkomið úrval stórmarkaða, verslana, banka og apóteka. Samstæðan er nálægt íþróttasvæði, með tennis- og paddelvöllum, sem og fótboltavelli. Þá eru einnig ýmsir golfvellir í stuttri akstursfjarlægð.
Kjarninn býður upp á íbúðir með 2 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og einkasundlaug. Velja má milli jarðhæðar með einkagarði eða efstu hæðar með þakverönd. Íbúðirnar bjóða uppá opna hönnun sem sameinar setustofu, borðkrók og eldhús með aðskildu þvottahúsi. Bæði svefnherbergin eru með en-suite baðherbergi og hjónaherbergið er með sér fataherbergi. Stórar glerhurðar í stofu opnast út á verönd sem leiðir út í garðinn eða uppá þakveröndina, eftir því á hvorri hæðinni eignin er.
Auk glæsilegrar staðsetningar og hönnunar, eru íbúðirnar einnig með loftkælingu, eldhústækjum, innbyggðum fataskápum, einkasundlaug með foruppsetningu fyrir varmadælu og eigin bílastæði.Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum