Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
Þessi eign er ekki í boði
REF 3071602
Húsin eru staðsett í spænska bænum San Pedro del Pinatar, við Costa Cálida. Kjarninn býr að allri nauðsynlegri daglegri þjónustu í göngufæri, og val er um tvær strendur, önnur er við innhafið Mar Menor og hin við Miðjarðarhafið. Góð staðsetning til dvalar í fríum eða búsetu allt árið, í ekta spænskum bæ.
Raðhúsin eru á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum og einkasundlaug. Jarðhæð samanstendur af opinni stofu, eldhúsi og borðstofu, gestasalerni og hjónaherbergi. Rúmgóð lóð fyrir framan húsið er með einkasundlaug og bílastæði. Baka til við húsið er þvottahús og nóg pláss til að byggja geymslu (valfrjálst). Á fyrstu hæð eru tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi en bæði herbergin hafa aðgang að lítilli verönd með útsýni yfir sundlaugina.
Allar eignir eru tilbúnar til uppsetningar á loftkælingu/hitun, þeim fylgja eldhústæki, fullbúin baðherbergi, fataskápar, einkasundlaug og b
Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan
San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.
Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum