TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR! Parhús með 3 svefnherbergjum, 1,5 km frá ströndinni í San Pedro del Pinatar

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

Þessi eign er ekki í boði


3

2

111.75 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4895536

Nýr kjarni parhúsa í 1,5 km fjarlægð frá ströndinni í San Pedro del Pinatar. Kjarninn er nálægt alls kyns þjónustu, s.s. matvöruverslunum, búðum, börum, veitingastöðum, alþjóðlegum og almennum skólum, og heilsugæslu. Fallegu strendur Mar Menor og hinar stórkostlegu miðjarðarhafstrendur Higuericas eru í örstuttri akstursfjarlægð. Svæðið er þekkt útivistarsvæði vegna fjölda golfvalla og gönguleiða, auk tækifæra til að stunda ýmis vatnasport, eins og siglingar og köfun.

Þessi nútímalegu hús með 3 svefnherbergjum eru á 3 hæðum. Á jarðhæðinni er stofan, borðstofan og eldhúsið í opnu rými sem opnast út á verönd. Á hæðinni er einnig gestasalerni og verönd að aftanverðu húsinu. Á miðhæðinni eru 2 svefnherbergi og baðherbergi, svalir eru útfrá öðru svefnherberginu í sumum húsanna. Efsta hæðin er með 3ja svefnherberginu, baðherbergi og svalir. Aukalega er hægt að fá heitan pott á þær svalir og sundlaug í garðinn.

Húsunum fylgja eldhústæki, loftkæling, inni- og útilýsing, tengi fyrir sólarsellur og bílastæði. Miðað við svæðið, verðið og það sem húsunum fylgir er hægt að fullyrða að hér er hægt að gera góð kaup.

See more...

  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa Cálida, Mar Menor, San Pedro - Lo Pagan

San Pedro del Pinatar hefur fram að færa 14 km af ströndum sem skiptast milli tveggja hafa; Mar Menor og Miðjarðarhafsins. Sérstök staðsetning bæjarins við ströndina og náttúrulegt umhverfi á svæðinu hafa ýtt undir vinsældir hans og aukið eftirspurn eftir húsnæði.

Auk fallegra stranda, hafnarinnar og góðu framboði þjónustu hefur San Pedro del Pinatar fram að færa einstaka náttúruperlu; þjóðgarðinn Las Salinas y Arenales de San Pedro del Pinatar en garðurinn er votlendi með fjölbreyttu fuglalífi og fallegri plöntuflóru. Bærinn San Pedro del Pinatar, auk sjálfs kjarna bæjarins, er byggður upp af öðrum litlum úthverfum eins og El Mojón, Las Salinas, Los Sáez og Lo Pagán. Hið síðasttalda, Lo Pagán, er hið mikilvægasta vegna mikillar þróunar hvað varðar ferðamennsku. Mikilvægasta ströndin í Lo Pagán er playa de La Puntica, en þar eru falleg lítil hús og spa svæði sem teygir sig út í hafið, auk góðs framboðs af dægradvöl.

  • 30 km
  • 8 km
  • 30 km
  • 2 km
  • 16 km
  • 13 km

Nánari upplýsingar um San Pedro - Lo Pagan

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.