Íbúðir með 3 svefnherbergjum, einkagarði og sjávarútsýni, 500m frá ströndinni í Estepona

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona

Þessi eign er ekki í boði


3

2

125.37 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4813709

Kjarni sem er í 500m fjarlægð frá ströndinni í Estepona. Kjarninn er í nýju hverfi sem er einungis í 10 mínútna fjarlægð frá miðbæ Estepona og allri þeirri þjónustu sem þar er að finna, margar hverjar í göngufjarlægð, s.s. matvöruverslanir, veitingastaðir, skólar, heilsugæsla, spítali, íþróttavellir og ýmis tækifæri til tómstunda. Estepona er með 20 km strandlengju sem teygir sig á milli borganna Puerto Banús og Sotogrande, en þar er að finna mikilvægustu hafnir Costa del Sol svæðisins. Kjarninn er umkringdur fjölda golfvalla, s.s. Valle Romano Golf & Resort, Estepona Golf og Finca Cortesín Golf Club, en svæðið er einnig fullkomið fyrir áhugamenn um útivist- og vatnasport. Kjarninn er vel tengdur vegakerfinu, s.s. AP-7 og A-7 hraðbrautunum, sem gerir það að verkum að stuttan tíma tekur að aka til annarra staða á Costa del Sol, en um 25 mínútur tekur að aka til Sotogrande, um 30 mínútur til miðbæjar Marbella og Puerto Banús, og um 40 mínútur til Algeciras. Flugvöllurinn í Malaga er í um 50 míntútna akstursfjarlægð og flugvöllurinn í Gíbraltar er í um 45 mínútna aksturfjarlægð.

Kjarninn býður upp á nútímalegar íbúðir með 1, 2 eða 3 svefnherbergjum og eru þær fáanlegar í ýmsum útgáfum; jarðhæðir með einkagarði, miðhæðir og þakíbúðir með stórri verönd. Allar íbúðir snúa í suður og bjóða upp á afar fallegt sjávarútsýni sem er kjörið til að njóta í mildu lofstlaginu sem Costa del Sol býður upp á. Íbúðirnar eru með stofu, borðstofu og eldhús í einu opnu rúmgóðu rými með aðgengi út á verönd. Hjónaherbergin í íbúðunum sem eru með 2 og 3 svefnherbergjum eru með baðherbergi inn af og í sumum íbúðanna er útgengi þaðan út á verönd.

Íbúðirnar eru byggðar úr úrvals byggingarefnum, og fylgja þeim fullbúin eldhús, tvöfalt gler, loftkæling sem bæði hitar og kælir, loftræsting, fullbúnir fataskápar, myndavélasími, geymsla og bílastæði með hleðslustöð fyrir rafbíla.

Kjarinn er alveg lokaður og er með fjölda sameiginlegra svæða, s.s. 2 sundlaugar með aðstöðu til sólbaða, stór græn svæði sem eru kjörin til að slaka á, líkamsræktartæki, bæði innandyra og utan, klúbbhús og púttsvæði. Til að auðvelda íbúum að nýta sameiginlegu svæðin munu þeir fá snjallforrit í síma sem stjórnar aðgangi þeirra að sameiginlegu svæðunum, auk aðgengi að bílastæðunum og fleiru.

See more...

  • verönd
  • eigin garður
  • bílastæði
  • sameiginleg sundlaug
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Estepona

Einn mest heillandi staðurinn við Costa del Sol er bærinn Estepona. Staðsettur á milli Miðjarðarhafsins og frjósams dals með lækjum og fallegu grænu fjallanna í Sierra Bermeja. Svæðið nýtur milds Miðjarðarhafsloftslags, með árlegum meðalhita upp á 17º og næstum 300 sólríka daga á ári. Allt þetta gerir bæinn að einum mikilvægasta áfangastað ferðamanna og þeirra sem eiga sitt annað heimili á suðurströnd Spánar.

Estepona hefur það besta sem fjöllin og hafið hafa upp á að bjóða. Borgin og svæðið sem henni tengist, býður upp á 23 km af fallegum ströndum með alls kyns þjónustu sem tryggir öryggi og ánægju meðfram einni lengstu strandlengju Málaga héraðs. Estepona smábátahöfnin er uppáhaldsstaður þeirra sem leita að tómstundum og skemmtun á kvöldin, sérstaklega yfir  sumarmánuðina. Sierra Bermeja fjöllin eru tilvalið náttúrusvæði til að njóta alls kyns útivistar, svo sem gönguferða, hjólreiða eða fuglaskoðunar.

  • 40 km
  • 3 km
  • 53 km
  • 1 km
  • 30 km
  • 2 km

Nánari upplýsingar um Estepona

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.