Íbúð, innan við 900m frá strönd í Calahonda

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

frá 49,533,000 kr
frá 330.000€

2

2

113.49 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4303727

Nútímaleg íbúðasamstæða, innan við 900m frá ströndinni í Calahonda, Mijas. Svæði með fjölbreytta þjónustu, ríka matarupplifun með veitingastöðum af öllum tegundum, stórbrotnu göngusvæði meðfram ströndinni og fjölbreyttu úrval íþróttamannvirkja, en á svæðinu eru golfvellir, tennisvellir, paddle og ýmis íþróttafélög. Auk þess að vera svo nálægt ströndinni, þar sem skemmtileg strandstemning nýtur sín, eru helstu ferðamannastaðir Costa del Sol ekki langt í burtu, með Marbella og Fuengirola í innan við 15 mínútna fjarlægð með bíl og AP-7 hraðbrautin gerir það auðvelt að komast á Málaga flugvöll á 30 mínútum.

Íbúðir fáanlegar með 1 og 2 svefnherbergjum, af mismunandi gerðum. Velja má milli íbúða á jarðhæð með garði, miðhæðaríbúða með stórum veröndum og þakíbúða með þakverönd. Allar eignirnar bjóða upp á rúmgott útisvæði, þar sem hægt er að njóta góða veðursins allt árið um kring. Góður frágangur er á eignunum og þeim fylgja eldhústæki og loftkæling.

Samstæðan er lokuð og býður upp á frábæra sameiginlega aðstöðu, íþróttaklúbb og leiguþjónustu. Íbúar geta notið stóru sameiginlegu sundlaugarinnar með fallegu svæði til slökunar, svæðis fyrir golfþjálfun eða vinnuherbergis með háhraða interneti. Samstæðan býður eigendum einnig upp á sérstök tilboð hjá íþróttaklúbbnum sem felur meðal annars í sér aðgang að aðstöðu eins og paddle, líkamsrækt eða heilsulind svo eitthvað sé nefnt.

Þessar íbúðir eru óviðjafnanlegt fjárfestingartækifæri, miðað við staðsetningu, gæði, verð og leigumöguleika.
See more...

  • verönd
  • sameiginleg sundlaug
  • sameiginlegur garður
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina. 

Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi. 

  • 36 km
  • 2 km
  • 10 km
  • 1 km
  • 10 km
  • 1 km

Nánari upplýsingar um Mijas Costa

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.