TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR OG FULLBÚIÐ! Þakíbúðir með 3 svefnherbergjum, stórri verönd og þakverönd, 900m frá ströndinni í Malaga

Costa del Sol, Málaga

frá 107,471,600 kr
frá 716.000€

3

2

89.28 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 5132310

Síðustu þakíbúðirnar, tilbúnar til innflutnings, 900m frá ströndinni í Malaga. Kjörin staðsetning, í einungis 15 mínútna akstursfjarlægð frá miðbænum og nálægt allri helstu þjónustu, sum hver í göngufjarlægð, eins og matvöruverslanir, veitingarstaði, kaffihús, verslunarmiðstöð og spítali.  Malaga er borg sem er í stanslausri þróun með virku menningarlífi, með yfir 36 söfn og gallerí. Falleg standlengja einkennir borgina sem dregur að sér ferðamenn allt árið um kring, með alþjóðaflugvöll í 7 mínútna fjarlægð auk háhraðalestar sem er í 15 mínútna fjarlægð frá íbúðunum.

Nútímalegar þakíbúðir með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og stórri verönd, fáanlegar með eða án þakverandar. Báðar útgáfur eru með opnu skipulagi og stofu sem opnast út á svalir. Hjónaherbergið er með baðherbergi inn af og svo sameiginlegt baðherbergi fyrir hin tvö herbergin. Íbúðirnar sem eru með þakverönd eru með stiga að utanverðu sem leiðir upp á veröndina þar sem hægt er að njóta fallega útsýnisins og sólar þá 320 daga á ári sem sólin skín á Malaga.

Íbúðirnar eru byggðar úr úrvals byggingarefnum og þeim fylgja fullbúin eldhús, loftkæling, fataskápar, fullbúin baðherbergi, myndavéladyrasími, 2 bílastæði og geymsla. Kjarninn er með A í orkunotkun og Passive House Construction Certificate (Passivhaus) vottun sem tryggir sjálfbærni í orkunotkun, góða einangrun sem tryggir hljóðgæði og lágmarkar hávaða frá öðrum íbúðum, loftræstingu og sérstaka filter tækni sem hámarkar loftgæði innan íbúðarinnar.

Kjarninn er alveg lokaður sem tryggir öryggi íbúa, sameiginlega sundlaug með LED lýsingu að innanverðu og hágæða filter kerfi, sem tryggir vatnsgæði.

See more...

  • verönd
  • bílastæði
  • þakverönd
  • sameiginleg sundlaug
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Málaga

Málaga borg, höfuðborg samnefnds héraðs, er staðsett við vesturhluta Miðjarðarhafsins á suðurströnd Spánar, í um 100km fjarlægð frá Gíbraltarsundi. Íbúafjöldi borgarinnar er um 580.000 og hún þannig önnur fjölmennasta borg Andalúsíu og sjötta í röðinni yfir Spán í heild sinni. Borgin var stofnuð af Föníkumönnum á áttundu öld fyrir Krist, sem gerir hana enn fremur að einni elstu borg Evrópu. 

Fyrir utan sólríkar strendur, býr þessi borg við rætur Miðjarðarhafsins að mjög áhugaverðum menningarhefðum. Staðurinn sem bauð snillinginn Pablo Picasso velkominn í heiminn, hefur á undanförnum árum aukið við menningararfinn og opnað söfn við allra hæfi. Í borginni má finna einu Pompidou miðstöðina utan Frakklands. 

Á síðustu árum hefur Málaga bæst í hóp bæjarfélaga sem kalla má hefðbundna áfangastaði þeirra sem velja þann kost að koma sér upp heimili í sólinni, á borð við Marbella og Benahavís, þökk sé ríkara menningarlegu framboði, úrvali tómstunda og dægradvalar, tæknivæðingu í borginni og nútímalegri aðlögun að grunnþörfum þeirra sem ferðast og dvelja á staðnum. Það er notalegt að ganga um borgina sem verður alltaf vinsælli og sjá hvernig Alcabaza virkið, Castillo de Gibralfaro kastalinn og dómkirkjan, La Catedral, blandast við önnur hverfi eins og listamannahverfið Soho, með veröndum þar sem má tylla sér og snæða…eða fyrir þá sem elska að versla, að kanna merkar verslanagötur. 

  • 5 km
  • 5 km
  • 4 km
  • 1 km
  • 0 km
  • 4 km

Nánari upplýsingar um Málaga

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.