Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Þessi eign er ekki í boði
REF 114134
Ný einbýlishús í íbúðahverfi El Raso, mjög nálægt Guardamar. Í aðeins fimm mínútna akstursfjarlægð frá stórkostlegum ströndum Guardamar, mjög nálægt allri þjónustu og með flottu útsýni yfir saltvötnin Lagunas de la Mata.
Tveggja hæða hús, öll með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, stórum veröndum og byggð á lóðum frá 246 til 285 m2 að stærð sem gefur möguleika á sundlaug í garðinum. Marmaragólf eru í húsunum, þau eru afhent klár fyrir uppsetningu á loftkælingu og í þeim eru rafdrifnir glugghlerar og stýring á lýsingu.
Gott verð er á eignunum miðað við staðsetningu og gæði við byggingu.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Guardamar
Guardamar er einn af helstu ferðamannastöðunum við Suður Costa Blanca, ásamt Orihuela Costa, Torrevieja og Santa Pola.
Guardamar hefur 11 km. langa mishæðótta strönd og þar má njóta átta breiðra, gullinna stranda. Þar á meðal eru nektarströndin Los Tusales og hin fallega Pinada, við hlið hreyfanlegu sandhólana sem liggja meðfram sjávarsíðunni í Guardamar. Fasteignir sem í boði eru í Guardamar eru á breiðu verðbili. Sérstakt úrval er að finna í fasteignum við ströndina, með ótrúlegu sjávarútsýni og fyrsta flokk gæðum. Hér má sjá fasteignirnar við ströndina í Guardamar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum