Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Punta Prima
REF 4671412
Í byggingunni eru íbúðir með tveimur eða þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Hver íbúð er með stofu í opnu rými, stórum gluggum sem opnast út á svalir sem snúa í suðvestur eða norðaustur. Íbúðir á neðri hæð eru með einkagarði, en úr efstu íbúðunum er stórkostlegt útsýni yfir hafið. Sameiginlega svæðið er á þaki byggingarinnar þaðan sem hægt er að njóta stórkostlegs útsýnis til allra átta og er þar einnig sundlaug, nuddpottur, nokkur svæði til sólbaða, sem og hvíldarsvæði. Einnig er sameiginlegt svæði á jarðhæð með görðum og hjólastæði. Bílastæðið er í kjallaranum þar sem líka eru geymslur.
Glæsilegar íbúðir semhægt er að sníða eftir eigin höfði og eru þær allar með loftræstingu um stokk með hitastilli í stofu, hita í gólfum á baðherbergjum, innbyggðum skápum, LED-ljósum inni, geymslu og stæði í bílahúsi. Íbúðum á jarðhæð fylgir einnig sóltjald á svölum og gervigras í garði.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Punta Prima
Rétt við mörk Torrevieja og Orihuela Costa er Punta Prima, fullkomin íbúðabyggð fyrir þá sem vilja kaupa fasteign á Costa Blanca.
Þar er að finna stórkostlegt úrval þjónustu, auk þess fylgir sá kostur að vera nálægt miðbæ Torrevieja en njóta um leið ró og kyrrðar á nokkuð þéttbyggðu svæði. Meginaðdráttarafl byggðarinnar í þessum hluta Orihuela Costa er gullin ströndin, strandgatan og ótrúlegt úrval tómstunda, skemmtana og fasteigna. Skoðið fasteignaúrvalið við ströndina í Punta Prima:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum