Costa Cálida, Mar Menor, Torre Pacheco
REF 5026250
Nútímaleg einbýlishús á einni hæð með rúmgóðri þakverönd, byggð á lóðum sem eru 192-296 m2. Húsin eru fáanleg með 2, 3 eða 4 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Stofan, borðstofan og eldhúsið eru í einu opnu rými og er eldhúsið með morgunverðarborði. Stórir gluggarnir opnast út á verönd en þar er pergóla og sundlaugin. Rúmgóð þakveröndin er aðgengileg með stiga sem er utanhúss en þar er útieldhús sem gerir hana kjörna til að njóta sumarkvöldanna með ættingjum og vinum.
Húsin eru byggð úr úrvals byggingarefum og þeim fylgir tengi fyrir loftkælingu, fullbúið eldhús, LED lýsing í stofu, eldhúsi og baðherbergjum auk LED lýsingar í garðinum og á þakveröndinni, útieldhús, flísalagður garður, sundlaug og útisturta, auk bílastæðis.
Með tilliti til staðsetningar, verðs og þess sem fylgir eru þessi hús gott fjárfestingartækifæri hvort sem um er að ræða orlofsbústað eða sem heimili.Costa Cálida, Mar Menor, Torre Pacheco
Torre Pacheco tilheyrir Murcia og liggur skammt frá bænum Los Alcázares við Mar Menor. Svæðið er þekkt fyrir áberandi vindmyllur og úrval golfvalla en bærinn sjálfur býður upp á gott úrval af daglegri þjónustu, börum og veitingastöðum ásamt heilsugæslu og tveimur skólum og er þannig kjörinn kostur fyrir búsetu allt árið um kring.
Þótt um sé að ræða svæði inni í landi eru strendur Mar Menor í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð, þar sem margar vatnaíþróttir eru í boði, svo sem köfun, snorkl og siglingar. Medland býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Torre Pacheco, allt frá íbúðum til einbýlishúsa, sem staðsettar eru nálægt daglegri þjónustu, ýmsum golfvöllum og í stuttri akstursfjarlægð frá ströndinni.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum