Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Þessi eign er ekki í boði
REF 2154001
Nýr einbýlishúsakjarni í Benijófar, notalegum spænskum bæ við suður Costa Blanca en þorpið er staðsett við hlið Ciudad Quesada hverfisins og einungis 10 mínútur tekur að aka að ströndum Guardamar. Húsin eru prýdd Ibiza stíl að utan, með náttúrulegum steini en innréttingar í húsinu eru nútímalegar og eignirnar bjartar og fallegar. Öll húsin eru á tveimur hæðum og hafa 3 svefnherbergi, eitt þeirra á jarðhæð. Tvö baðherbergi með gólfhita eru í hverju húsi, nútímalegt eldhús, stofa með tvöfaldri lofthæð og beinum aðgangi að verönd, ásamt stórri þakverönd. Lóðirnar eru milli 217 og 296 m2 að stærð og garði er skilað fullfrágengnum en möguleiki er að láta koma fyrir allt að 18 m2sundlaug á lóðinni.
Í boði eru tvær sérhannaðar eignir á síðustu lóðunum. Opin stofa, borðstofa og eldhús, gestasalerni og en-suite svefnherbergi á jarðhæð en stofan opnast útá stóra verönd og sundlaugarsvæðið. Á efri hæð eru 2 en-suite svefnherbergi, með aðgangi að stórri verönd með útsýni yfir sundlaugina.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Fasteignaúrvalið í Benijófar er mjög fjölbreytt, nægir þar að nefna úrval einbýla og raðhúsa. Falleg hönnun á einbýlum og fyrsta flokks gæði á samkeppnishæfu verði. Skoðið fasteignaframboðið í Benijófar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum