Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Þessi eign er ekki í boði
REF 2791449
Einbýlishúsakjarni í bænum Benijófar við suður Costa Blanca. Í göngufæri frá miðbænum, með margs konar daglegri þjónustu og stutt er að aka til Ciudad Quesada þar sem finna má gott úrval tómstunda og afþreyingar, svo sem golf, vatnagarð og fjölmarga veitingastaði. Glæsilegar sandstrendur Guardamar eru í aðeins 10 mínútna akstursfjarlægð. Benijófar er staðsett nálægt AP7 og auðvelt að ferðast um svæðið. Aðeins 30 mínútur tekur að aka að flugvellinum í Alicante.
Nútímaleg einbýlishús á tveimur hæðum með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Velja má um hús með eða án þakverandar. Opin stofa, borðstofa og eldhús eru í húsunum en úr alrými er gengið út á verönd og sundlaugarsvæði. Á jarðhæð er enn fremur svefnherbergi með sér baðherbergi, gestasalerni og þvottahús. 2 svefnherbergi eru á efri hæð, hvort um sig með verönd en baðherbergi á efri hæð er sameiginlegt.
Húsunum fylgir loftkæling/hitun, eldhústæki, inni- og útilýsing, vélknúið hlið með fjarstýringu, útihúseldhús og grill, einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Benijófar
Fasteignaúrvalið í Benijófar er mjög fjölbreytt, nægir þar að nefna úrval einbýla og raðhúsa. Falleg hönnun á einbýlum og fyrsta flokks gæði á samkeppnishæfu verði. Skoðið fasteignaframboðið í Benijófar
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum