Costa Blanca Suður, Vinalopó Medio, La Romana
REF 3076491
Nýr kjarni einbýlishúsa í Aspe, íbúðahverfi við Elche. Svæðið er nálægt Alenda golfvellinum og skammt frá daglegri þjónustu í Aspe og borginni Elche. Náttúrulegur og friðsæll staður, og í aðeins 20 mínútna akstursfjarlægð frá frábærum ströndum Arenales del Sol og Santa Pola.
Velja má um þrjár gerðir húsa, öll með 3 svefnherbergjum og 2-3 baðherbergjum, byggð á lóðum milli 400m2 og 595m2. Valið stendur um einbýlishús á einni hæð með eða án þakverandar, eða tveggja hæða einbýlishús með stórri verönd. Í öllum húsunum er rúmgóð stofa, borðstofa og nútímalegt eldhús, með stórum gluggum út á verönd og útsýni yfir garðinn.
Húsin eru byggð með hágæða efnum og boðið er uppá ýmsa valkosti við frágang. Allar eignir eru með fullbúnu eldhúsi, lýsingu, fataskápum, þvottahúsi og bílastæði á lóð. Það fer svo eftir gerð hússins hvort loftkæling/hitun er innifalin en einkasundlaug er einnig innifalin í kaupunum.
Costa Blanca Suður, Vinalopó Medio, La Romana
Þorpið La Romana er inni í landi, á svæði sem kallast Vinalopó við suður Costa Blanca. Svæðið er umkringt vínekrum og möndlutrjám og er þekkt fyrir marmara uppgröft. Þorpið býður upp á grunn þjónustu, með vikulegum götumarkaði á laugardögum. Aðalborgin Elche, með breytt úrval alls kyns þjónustu, og stórbrotnar strendur Arenales del Sol eru í 20 og 30 mínútna akstursfjarlægð. Eins og í öllum spænskum þorpum, býður La Romana uppá margs konar hátíðir, þar á meðal hátíð mára og kristinna í ágúst, auk matarhátíðar á haustin. Þar má fá einbýlishús á stórum lóðum, á samkeppnishæfu verði og friðsælt umhverfið gerir La Romana að aðlaðandi kosti.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum