Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Þessi eign er ekki í boði
REF 1793874
Nýr kjarni einbýlishúsa við golfvöllinn Roda Golf, aðeins 2,70 km frá ströndinni Los Narejos og allri þeirri þjónustu sem bærinn Los Alcázares býður uppá. Öll þægindi í nágrenninu og rólegheitin við Mar Menor stutt frá. Boðið er uppá einbýlishús með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, byggð á tveimur hæðum auk þakverandar. Húsin hafa opna og bjarta stofu, nútíma eldhús og verönd. Útisvæðið er búið einkasundlaug og bílastæði á lóð.
Costa Cálida, Mar Menor, Los Alcázares
Los Alcázares býr að 9 km strönd við Mar Menor og þar á meðal má finna strendur sem liggja við byggð, eins og Los Narejos og Las Salinas, með löngum strandgöngustíg og góðu úrvali af dægradvöl.
Á svæðinu eru líka verndaðar náttúruperlur eins og playa de La Hita, sem er mikilvægur dvalarstaður farfugla og ein af fáum ósnortnum ströndum Mar Menor. Þökk sé flötu landslagi, er Los Alcázares tilvalinn staður fyrir þá sem hafa gaman af hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi, en tveir góðir golfvellir eru á staðnum, La Serena Golf y Roda Golf. Medland Spáni býður uppá fjölbreytt úrval fasteigna í Los Alcázares, allt frá íbúðum til stórra einbýlishúsa en allar eignirnar standa nálægt strönd, golfi og þjónustu.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum