Costa Blanca Norður, Marina Baja, Altea
Þessi eign er ekki í boði
REF 3548429
Nútímalegt einbýlishús staðsett í hlíð, við Altea, með óröskuðu sjávarútsýni. Altea er fallegur bær með hvítkölkuðum húsum og hlykkjóttum götum og liggur að sjónum. Miðbær Altea er í innan við 15 mínútna akstursfjarlægð frá eigninni, þar sem hægt er að sækja úrval af daglegri þjónustu. Þökk sé tempruðu loftslagi má njóta úrvals útivistar allt árið um kring, eins og golfs, siglinga, tennis og paddle, auk gönguferða.
Þetta frábæra einbýlishús er byggt á hallandi lóð sem mælist 1.075m2 og inniheldur 4 svefnherbergi með útsýni yfir Miðjarðarhafið. Jarðhæðin samanstendur af 4 en-suite svefnherbergjum með aðgangi að rúmgóðri verönd. Efri hæðin er aðalhæð hússins, með stórri setustofu og borðkrók og hálf sjálfstæðu eldhúsi. Stórar glerhurðar í setustofunni, opnast út á 120m2 verönd sem er yfirbyggð að hluta. Hægt er að slaka vel á í nuddpottinum eða infinity sundlauginni. Efsta hæðin er aðalinngangur að húsinu, með auka verönd og bílastæði fyrir 2 bíla.
Við byggingu eru notuð hágæða efni og innifalinn er lífmassa arinn sem aðskilur setustofuna og borðkrókinn, náttúruleg viðarskilrúm/klæðningar og lyfta sem tengir allar hæðir. Þá fylgir loftkæling, gólfhiti, eldhústæki, landslagshannaður garður, útilýsing og bílastæði á lóð.Costa Blanca Norður, Marina Baja, Altea
Altea er af mörgum talin fegursta borgin á Costa Blanca.
Gamli miðbærinn með sínum þröngu og bröttu götum, hvítu húsum og sinni víðfrægu bláu kirkjuhvelfingu, gefa staðnum töfrum gætt yfirbragð og sjarma. Bóhemískt andrúmsloftið í Altea hefur dregið að listamenn sem leita eftir fegurð og einstakri birtu við Miðjarðarhafið. Við sjávarröndina í neðri hluta bæjarins er strandgata, höfnin og siglingaklúbbur. Á þessu svæði er að finna úrval nýbygginga, sér í lagi íbúðir mjög nálægt ströndinni. Í 5 km. fjarlægð frá miðbænum er Altea Hills, lúxus íbúðasvæði þar sem finna má fimm stjörnu hótel og golfvöll. Hér er að finna einstakt úrval fasteigna, með áherslu á lúxusíbúðir og einbýli. Skoðið fasteignirnar á ströndinni við Altea.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum