Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Santa Pola, Gran Alacant
Þessi eign er ekki í boði
REF 229931
Ný einbýlishús í Gran Alacant, vinsælu íbúðarhverfi í Santa Pola en þar er gott framboð þjónustu og hverfið liggur í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð frá borginni Alicante. Húsin eru í göngufæri frá verslunarmiðstöð, sem býður upp á fjölbreytt úrval af veitingastöðum, börum og matvöruverslunum. Aðeins 3 km eru að ströndinni Carabassi.
Húsin eru byggð á lóðum frá 250-278 m2 og eru á tveimur hæðum. Á jarðhæð er björt stofa með tvöfaldri lofthæð, stórum gluggum og beinum aðgangi að sundlaugarsvæðinu ásamt nútíma eldhúsi sem opið er inní stofuna. Á jarðhæð er einnig svefnherbergi og baðherbergi. Á efri hæð eru tvö stór svefnherbergi, bæði með ensuite baðherbergi. Góður frágangur er á eignunum og þeim fylgir bílastæði og einkasundlaug, 6x3 metrar að stærð.
Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Santa Pola, Gran Alacant
Gran Alacant er samansafn íbúðabyggða sem eru á skaganum Cabo de Santa Pola, á milli lágra fjalla og strandarinnar Carabassí. Þetta er einn vinsælasti búsetuferðaþjónustustaðurinn á Costa Blanca síðust ár.
Sönnun þessara vinsælda er sú staðreynd að þar búa yfir 11 þúsund manns og að öll þjónusta í borginni er opin allt árið um kring, eins og skólar, heilsugæsla, verslanamiðstöðvar, pósthús, bankar og apótek. Borgin hefur því allt sem þarf til að auðvelda líf þeirra sem kjósa þennan fallega stað við Costa Blanca til að eiga heimili. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Gran Alacant
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum