Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca
Þessi eign er ekki í boði
REF 1435488
Nútíma einbýlishús með einkasundlaug við La Finca golfvöllinn, á fallegu svæði með 5 stjörnu SPA hóteli, klúbbhúsi og verslunarkjarna. Frábært útsýni er yfir dalinn og aðeins 10-15 mínútur að ströndum Guardamar og Torrevieja.
Húsin eru á einni hæð auk 45 m2 þakverandar og samanstanda af 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi er í húsunum. Þökk sé L-laga hönnun húsanna, njóta þau næðis og öll rými hússins njóta birtu að utan með stórum gluggum. Öllum húsum fylgir einkasundlaug, garður og bílastæði.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Algorfa, La Finca
La Finca er afmörkuð íbúabyggð sem teygir sig utan um samnefndan golfvöll, La Finca Golf. Hér er að finna fyrsta flokks þjónustu eins og fimm stjörnu hótel, stórt klúbbhús, golfskóla, íþróttavöll og verslanasvæði með veitingastöðum og annarri þjónustu.
Fasteignirnar við La Finca Golf eiga sameiginlegt rólegt umhverfið og fallegt útsýni yfir dalinn. Í aðeins um 2 km. fjarlægð frá miðbæ Algorfa og allri nauðsynlegri þjónustu, og í 15 mín. fjarlægð frá ströndum Guardamar. Fullkominn staður fyrir þá sem leita eftir fasteign í nálægð við ströndina, langt frá skarkala en þó stutt í allt. Hér má sjá fasteignaframboðið við La Finca Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum