Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
Þessi eign er ekki í boði
REF 4560379
Samstæðan samanstendur af nútímalegum tveggja hæða einbýlishúsum með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum (2 en-suite), ásamt rúmgóðri þakverönd. Þá eru líka íbúðir í boði, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, af tveimur mismunandi gerðum; jarðhæð með garði eða efsta hæð með þakverönd. Allar eignirnar eru með nútímalegri og hagnýtri hönnun, með stórri, opinni stofu, borðstofu og eldhúsi en alrýmið opnast út á verönd sem er yfirbyggð að hluta. Einbýli og íbúðir á jarðhæð eru með hellulagðri verönd með einkasundlaug við stofuna og litlum garði aftan við eignina. Íbúðirnar á efstu hæð eru með 83m2 þakverönd með einkasundlaug. Þessi glæsilegu útisvæði eru tilvalin til að njóta Miðjarðarhafsloftslagsins.
Eignunum fylgir loftkæling, innbyggð eldhústæki, innréttaðir skápar, einkasundlaug og, allt eftir eign, bílastæði á lóð eða á sameiginlegu bílastæði.
Costa Cálida, Mar Menor, San Javier - Santiago
San Javier er bær við Costa de Murcia en honum tilheyra 23 km af strönd við Mar Menor og 16 km við Miðjarðarhafið.
Auk bæjarkjarna San Javier, má þarna finna aðra bæi, eins og Santiago de La Ribera og La Manga del Mar Menor. Santiago de la Ribera býr að 4 km strönd þar sem Castillico, Barnuevo og Colón, standa uppúr enda merktar gæðastimpli ferðaþjónustunnar. Þjónusta er almennt góð á svæðinu en nefna má flugvöllinn í Murcia og sportbátaklúbbinn sem býður upp á fjölmargar vatnaíþróttir árið um kring.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum