Íbúðir á jarðhæð, 400m frá ströndinni í Benalmadena

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Benalmádena

Þessi eign er ekki í boði


2

2

81.70 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4988923

Nýr íbúðakjarni, nálægt Benalmadena, sem er bær í Malaga héraði. Einstakar íbúðir í rólegu umhverfi og einungis 400m frá ströndinni. Mikil þjónusta er í nágrenninu, s.s. veitingastaðir, barir, matvöruverslanir, heilsugæsla og skólar. Fyrir golfarana þá er hinn frægi Torrequebrada völlur í um 5 mínútna akstursfjarlægð. Heimsborgin Malaga er í um 30 mínútna fjarlægð og flugvöllurinn í um 20 mínútna fjarlægð.

Þetta er lítilll kjarni með nútímalegum íbúðum sem eru fáanlegar í mismunandi útgáfum: jarðhæðir með 2 svefnherbergjum og tveimur stórum svölum, miðhæðir með 2 svefnherbergjum og þakíbúðir á tveimur hæðum með 3 svefnherbergjum, 3 baðherbergjum og mörgum svölum með sjávarútsýni. Íbúðirnar eru vel hannaðar og birtan er vel nýtt. Allar íbúðirnar eru með opnu skipulagi og stofu sem opnast út á veröndina þar sem kjörið er að njóta loftlagsins á Costa del Sol.

Allar íbúðirnar eru byggðar úr úrvals byggingarefnum og þeim fylgir loftkæling sem bæði hitar og kælir, fullbúin baðherbergi, geymsla og bílastæði í lokuðum bílakjallara með beinu aðgengi að íbúðunum. Aukalega er hægt að fá heitan pott á svalirnar.

See more...

  • verönd
  • bílageymsla í kjallara
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Benalmádena

Benalmádena liggur frá fjallsrótum Sierra de Mijas að strandlengjunni. Bærinn er staðsettur í efri hluta svæðisins og þaðan er stórkostlegt útsýni. Neðar er þéttbýlið Arroyo de la Miel, þar sem flestir íbúar eru staðsettir og að lokum er það Benalmádena-Costa, en þar má finna fjölmörg hótel, golfvelli, spilavíti og sportbátahöfn. Íbúafjöldi í Benálmadena er 72.000 sem gerir bæinn að sjöunda fjölmennasta sveitarfélagi héraðsins og setur hann í annað sæti á eftir borginni Málaga. 

Benalmádena er í dag einn helsti ferðamannastaðurinn við Costa del Sol og þekkt fyrir framboð af dægradvöl og tómstunda aðstöðu en þar á meðal er vatnagarður, tvö sædýrasöfn, spilavíti, kláfferja og ein stærsta sportbátahöfn í Andalúsíu. Svæðið er mjög vel tengt við höfuðborgina og aðra þéttbýliskjarna við Miðjarðarhafsstrendur, þar sem AP-7 hraðbrautin fer í gegnum það frá austri til vesturs. 

  • 17 km
  • 4 km
  • 7 km
  • 0 km
  • 2 km
  • 1 km

Nánari upplýsingar um Benalmádena

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.