Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Þessi eign er ekki í boði
REF 4047541
Klassísk einbýlishús í Miðjarðarhafsstíl í Pinar de Campoverde, íbúðahverfi í Pilar de la Horadada. Svæðið er umkringt furuskógum og í nokkurra mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Torre de la Horadada. Miðbærinn, með allri þjónustu og verslunum er einnig í stuttri akstursfjarlægð. Frábært vegakerfi gerir það auðvelt að komast að helstu borgum, Alicante eða Murcia, sem eru í innan við klukkutíma fjarlægð, og þar með alþjóðaflugvellirnir á hvorum stað fyrir sig.
Tveggja hæða einbýlishús, byggt á glæsilegri 692 m2 lóð, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum ásamt 80m2 þakverönd. Á aðalhæðinni er rúmgóð stofa/borðstofa með útgengi út á rúmgóða verönd en eldhúsið er hálflokað. Einnig eru tvö svefnherbergi og baðherbergi á þessari hæð. Kjallarahæðin hefur hjónaherbergi með sér baðherbergi en stórir gluggar hleypa dagsbirtu í rýmið. Þetta rými er einnig hægt að nota sem líkamsræktarstöð, heimabíó eða í öðrum tilgangi. Gegn aukakostnaði má byggja einkasundlaug.
Húsið er afhent tilbúið til uppsetningar á loftkælingu, því fylgir gólfhiti á baðherbergjum, fataskápar, eldhústæki og bílastæði á lóð.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Pilar de la Horadada
Pilar de la Horadada er syðsti bærinn á Costa Blanca og þar eru tvær byggðir þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað, Torre de la Horadada og Las Mil Palmeras.
Í bænum er mikið og fjölbreytt úrval íbúða við sjávarsíðuna en þar er einnig að finna áhugaverð, nýbyggð raðhús og einbýli á virkilega samkeppnishæfum verðum. Skoðið fasteignaframboðið við ströndina í Pilar de la Horadada:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum