Costa Blanca Norður, Marina Alta, Moraira
Þessi eign er ekki í boði
REF 3077001
Einbýli í hinum dásamlega strandbæ Moraira við norður Costa Blanca. Svæðið er þekkt fyrir fagurt landslag, umkringt fjöllum og býr að frábærum ströndum. Í bænum má finna fjölbreytt úrval daglegra þæginda, svo sem matvöruverslanir, apótek, banka og veitingastaði.
Húsið er á tveimur hæðum, með 3 svefnherbergjum, kjallara/bílskúr, og byggt á 925m2 lóð. Jarðhæð samanstendur af opinni stofu, borðstofu og eldhúsi, gestasalerni, geymslu og en-suite hjónaherbergi. Önnur 2 svefnherbergi, hvort um sig með sér baðherbergi, eru á efri hæð. Í kjallara er þvottahús og tvöfaldur bílskúr. Verönd á jarðhæð er að hluta til yfirbyggð og þaðan má njóta stórkostlegs útsýnis yfir hafið sem og frá verönd á efri hæð hússins.
Húsið býr að gæðafrágangi og því fylgir loftkæling/hitun, innbyggð eldhústæki, gólfhiti, snjallkerfi, fullfrágenginn garður og vökvunarkerfi ásamt infinity sundlaug og bílastæði á ló
Costa Blanca Norður, Marina Alta, Moraira
Moraira er fallegt Miðjarðarhafsþorp á milli Calpe og Jávea, og ber af vegna náttúrulegra stranda og kristalstærra víka. Fasteignaframboðið í Moraira samanstendur aðallega af einstökum þéttbýliskjörnum með lúxuseinbýlum. Einn af eftirlætisstöðum viðskiptavina sem leita eftir fyrsta flokks húsnæði við ströndina.
Moraira veitir íbúum öryggi, þjónustu, gott loftslag og óviðjafnalegt útsýni yfir Miðjarðarhafið. Skoðið húsnæði við ströndina í Moraira:
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum