Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Þessi eign er ekki í boði
REF 3057573
Það er óhætt að segja að þessi nýju lúxus einbýlishús, með útsýni yfir Miðjarðarhafið frá glæsilegu umhverfi sem prýðir Las Colinas Golf í Orihuela Costa, séu stórglæsileg!
Hönnuður húsanna leggur áherslu á rými, birtu og beinar línur í byggingunni og eignin er sannkallaður lúxus.
Las Colinas Golf er sannkölluð forréttindastaðsetning, einstaklega falleg náttúra er einkenni svæðisins sem og margs konar þjónusta sem stendur eigendum til boða. Golfvöllurinn sjálfur, tennis og paddle vellir, líkamsræktaraðstaða og 3 km gönguleiðir um náttúruna, svo eitthvað sé nefnt, auk verslana og klúbbhússins, veitingastaða og kaffihúsa.
Eigendur á Las Colinas hafa enn fremur aðgang að einka strandklúbbi við La Glea ströndina í Campoamor.
Á lóðum frá 853 m2 til 2200 m2 eru nú þegar í boði mismunandi gerðir einbýlishúsa, öll glæsilega hönnuð, rúmgóð og björt með stórum gluggum og rúmgóðum útisvæðum. Velja má milli 3ja og 4urra svefnherbergja eigna en flestar hafa þær einkabaðherbergi í hverju herbergi og val um sérhannað eldhús. Allar eignirnar hafa gólfhita og loftkælingu auk alls þess sem búast má við þegar um lúxus fasteign er að ræða, á stað eins og Las Colinas Golf.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Orihuela Costa, Las Colinas Golf
Las Colinas Golfklúbburinn er staðsettur í Orihuela Costa, í 330 hektara dal á milli hóla og sjávar. Einstök íbúðabyggð í forréttindaflokki, sem dreift er í kringum hinn frábæra golfvöll Colinas Golf. Þetta er ein af fáum lokuðu byggðum á svæðinu, en eftirlit er með aðgangi allan sólarhringinn.
Úrvalsíbúðir og glæsihús eru í boði fyrir íbúa Las Colinas Golf, ásamt ró og kyrrð í öruggu umhverfi, þökk sé þjónustu staðarhaldara. Má nefna Casa Club, þar sem finna má veitingastaði og verslanir, og Colinas Beach Club, sem er við ströndina við Campoamor og einungis fyrir húseigendur og íbúa Las Colinas Golf. Skoðið íbúðir og einbýli í Las Colinas Golf.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum