Einbýlishús með 4 svefnherbergjum, einkasundlaug og sjávarútsýni í Cala de Mijas

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

frá 285,190,000 kr
frá 1.900.000€

4

4

407.01 m2

1400.00 m2

Beiðni um upplýsingar um þessa eign

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Merkja sem uppáhalds   |       

REF 4442660

Glæsilegur kjarni lúxus einbýlishúsa, við Calanova Golf, sem talinn er einn af virtustu völlum Costa del Sol. Strandbærinn Cala de Mijas hefur gott úrval af daglegri þjónustu og þægindum, eins og matvöruverslunum, alþjóðlegum skólum, verslanamiðstöðvum og veitingastöðum á heimsmælikvarða. Bærinn Mijas, sem er stutt inn í landið, er dæmigerður andalúsískur bær með „hvítum húsum“, handverksmörkuðum og menningarstarfsemi. Fyrir útivistarfólk býður svæðið upp á margar gönguleiðir í fjöllunum í kring, auk ýmissa frábærra golfvalla. Gott vegakerfi tengir svæðið við Marbella og Málaga og flugvöllinn á aðeins 15 mínútum.

Nútímaleg einbýlishús á tveimur hæðum með 4 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum, byggð á lóðum á milli 571 og 596m2. Jarðhæðin hefur glæsilegt, stórt opið svæði, þar á meðal borðstofu með tvöfaldri lofthæð, eldhús með innbyggðum eldhústækjum og setustofu með aðgangi að verönd sem er yfirbyggð að hluta, garðinum og útsýnislaug. Á þessari hæð er hjónaherbergi með sér baðherbergi og fataherbergi, auk gestasalernis. 3 svefnherbergi sem eftir eru, hvert með sér baðherbergi og fataherbergi, eru á fyrstu hæð. Í kjallara má finna geymslu og tækjarými. Útisvæðin snúa í ólíkar áttir og tryggja einstakt útsýni yfir golfvöllinn, fjöllin í kring og Miðjarðarhafið.

Gegn aukakostnaði má bæta ýmsu við húsið, eins og heimabíói eða líkamsræktarsal, útieldhúsi með grillsvæði, LED lýsingu um allt og/eða upphitun í sundlaugina ásamt fleiru.

Gæðafrágangur er á eignunum og hugað er að sjálfbærni með lágmarksáhrifum á umhverfið. Húsin eru afhent með loftkælingu, gólfhita um alla eignina, innbyggðum eldhústækjum, innbyggðum fataskápum, útsýnislaug og bílastæði á lóðinni fyrir tvo bíla.
See more...

  • einkasundlaug
  • verönd
  • eigin garður
  • einkabílastæði
Más información

Gögnin þín hafa verið send SUCCESSFULLY

Villa hefur komið upp. Vinsamlegast reyndu aftur síðar

Staðsetning

Costa del Sol, Costa del Sol Occidental, Mijas, Mijas Costa

La Cala, heitir þéttbýli Mijas sem liggur við ströndina. La Cala er hefðbundið þorp sem í dag er miðpunktur 12 km langrar strandlengju. Við strendurnar eru glæsileg íbúðahverfi, hótel og fjöldinn allur af annars konar þjónustu. Á svæðinu má spila golf og tennis og stunda alls kyns vatnaíþróttir, svo sem köfun eða siglingar. Þá má auðvitað baða sig í sjónum eða liggja og sleikja sólina. 

Úr fortíð svæðisins standa eftir fjórir turnar sem voru hluti af varnarvirki andalúsísku strandlengjunnar. Þá hefur hafsbotninn við Mijas mikla vistfræðilega þýðingu en þar er mikil fjölbreytni í dýralífinu og fjöldi evrópskra, afríkanskra, Atlantshafs- og Miðjarðarhafstegunda lifa þar saman í sátt og samlyndi. 

  • 32 km
  • 4 km
  • 9 km
  • 3 km
  • 10 km
  • 6 km

Nánari upplýsingar um Mijas Costa

Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?

Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum

Skoðunarferðir

Hafa samband
NOTKUN Á KÖKUM
Við notum okkar vefkökur til að bæta reynslu þína og þjónustuna okkar. Haldirðu áfram að fletta, tökum við því sem samþykki á notkun okkar á kökum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um Reglur um notkun á vefkökum.