Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Elche, Aspe
REF 3378688
Lúxus einbýlishús við Font del Llop golfvöllinn í Aspe, við suður Costa Blanca. Til viðbótar við stórkostlegan golfvöll, er klúbbhús með verslun og veitingastað sem býður upp á Miðjarðarhafsmatargerð á staðnum. Miðbær Aspe er í 5 mínútna akstursfjarlægð þar sem finna má allar daglegar nauðsynjar. Stærri borgir, Elche og Alicante, eru í 15-20 mínútna akstursfjarlægð frá svæðinu sem og glæsilegar strendur Arenales del Sol.
Nútímalegt einbýlishús á tveimur hæðum, byggt á 765m2 lóð, með 4 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum. Tvöföld lofthæð er í stofunni, og þannig stærri gluggar sem veita náttúrulegri birtu í húsið. Aðalhæðin samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi, sjálfstæðu þvottahúsi, gestasalerni og inngangi í bílskúr. Tvö svefnherbergi og baðherbergi, sem og hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi má enn fremur finna á aðalhæðinni. Efri hæðin samanstendur af rúmgóðum stigapalli, baðherbergi og fataherbergi, sem nýta má eftir þörfum, t.d. sem auka en-suite svefnherbergi, aðra stofu eða skrifstofu. Tvær verandir, yfirbyggðar að hluta og með útsýni yfir sundlaugina og garðsvæðið eru enn fremur á efri hæðinni. Stórt útisvæði hússins liggur útfrá stofu, yfirbyggt að hluta svo njóta megi þess að sitja í skugga þegar hitinn er sem mestur.
Húsið er byggt með hágæða efnum og afhent með loftkælingu, gólfhita á öllu húsinu, eldhústækjum, fataskápum, einkasundlaug, garði og bílskúr. Gegn aukakostnaði má setja kjallara í húsið, allt að 197m2.Costa Blanca Suður, Bajo Vinalopó, Elche, Aspe
Bærinn Aspe liggur við borgina Elche og er í um 20 km. fjarlægð frá ströndinni.
Aðdráttarafl íbúðabyggðarinnar sem sprottið hefur upp við mörk bæjarins eru án efa úrvalsgæði og verð, svo að ekki sé minnst á alla þá þjónustu sem hægt er að finna í Elche. Fyrir þá sem leita að einbýli eða íbúð á góðu verði getur fasteignaúrval okkar í Aspe verið góður kostur. Hér má sjá fasteignaframboðið í Aspe
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum