Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Aguas Nuevas
Þessi eign er ekki í boði
REF 3047529
Nútíma einbýlishús staðsett í íbúðarhverfi Aguas Nuevas í Torrevieja. Tilvalin staðsetning fyrir þá sem leita að eign á rólegu svæði en nálægt allri þjónustu. Kjarninn er staðsettur við stóra íþróttamiðstöð, þar sem finna má tennisvelli, fótboltavöll, hlaupabrautir, sundlaugar, innisundlaug og fleira. Það eru einnig nokkrir skólar í nágrenninu, stór matvöruverslunum og ströndin er í aðeins 2 km fjarlægð. Húsin eru á tveimur hæðum, öll með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, mjög bjartri og opinni stofu/borðstofu með aðgangi að veröndinni, nútíma eldhúsi og 22,81 m2 þakverönd. Þeim fylgir stórt útisvæði, bílastæði á lóð, garður og einkasundlaug. Eignirnar eru afhentar tilbúnar fyrir uppsetningu á loftkælingu/hitun, með þjófavarnarkerfi og svokölluðu domotic kerfi, sem gerir kleift að fjarstýra gluggahlerum og loftkælingu, sem dæmi.
Costa Blanca Suður, Vega Baja (Costa), Torrevieja, Aguas Nuevas
Á milli strandanna La Mata og Los Locos er að finna Aguas Nuevas, rólega íbúðabyggð sem liggur ofarlega, með stórkostlegu sjávarútsýni á alla kanta.
Í Aguas Nuevas er fjöldi nýrra og áhugaverðra verkefna í bígerð sem munu koma til með að bæta enn við hið fjölbreytta úrval fasteigna við Costa Blanca. Skoðið fasteignaframboðið í Aguas Nuevas.
Viltu skoða þessa eign og svipaðar eignir?
Komdu í heimsókn og skoðaðu með eigin augum